er stjórnstöð
atvinnueldhússins

Í stað þess að geyma gögnin þín í möppum, tölvuskjölum og útprentuðum blöðum, heldur Metta utan um daglegt eftirlit, hitastig og atvik, og skráir sjálfkrafa hver gerði hvað og hvenær. Allt rekjanlegt, skýrt og öruggt.

Spjall án skuldbindinga · Uppsetning og kennsla innifalin · Uppsett hjá þér innan 14 daga frá pöntun

24/7sjálfvirk hitavöktun á kælum og frystum
0rekjanleg skráning
EN12830hitaskráning samkvæmt staðli
ÍS / EN / PLtungumál í boði
Þrifa og gátlistar

Öruggari leið til að standast úttekt og halda eldhúsinu hreinu og öruggu

Þrifa- og gátlistar hjálpa þér að fylgjast með daglegum, vikulegum og mánaðarlegum eftirlitsferlum í eldhúsinu. Skráðu hitamælingar, hreingerningar og öryggisatriði á kerfisbundinn hátt og hafðu alltaf yfirsýn yfir hvað er lokið og hvað bíður.

  • Settu inn atriði sem eiga að birtast daglega, vikulega, hálfsmánaðarlega, mánaðarlega, ársfjórðungslega eða árlega
  • Settu inn atriði hvenær sem er, utan áætlunar, og skráðu þannig til dæmis stærri þrif eða stök atriði
  • Skráningin getur verið tékk, hitastig, já/nei eða myndir
  • Ef skráning á hitastigi verður utan viðmiða er hægt að stofna sjálfvirkt atvik
  • Skoðaðu sögu aftur í tímann, sjáðu hvaða atriði gleymast oftast og taktu út skýrslur
  • Greindu skráningar niður á starfsfólk og sjáðu hverjir eru oftast að skrá á listann
1 sekúndaað ljúka atriði á listanum þínum
Starfsmaður skoðar þrifa- og gátlista á spjaldtölvu í eldhúsi Skjár með þrifa- og gátlista á vegg við uppvaskstöð
Hitamælingar

Snjallari leið til að mæla hita og vakta kæla og frysta allan sólarhringinn

Rauntímavöktun á hitastigi kæla, frysta og eldhúsbúnaðar. Stilltu viðmiðsmörk fyrir hvern skynjara og fáðu sjálfvirkar tilkynningar þegar hitastig fer út fyrir leyfileg mörk. Fylgstu með hitaferli aftur í tímann, berðu saman mælingarnar á milli tækja og búðu til útflutningshæf hitastigsskjöl tilbúin til eftirlitsskoðunar.

  • Sjálfvirkar mælingar allan sólarhringinn, vottaðar samkvæmt EN12830 gæða- og öryggisstaðlinum fyrir hitastýringu og gagnaskráningartæki
  • Viðvörun send í síma eða tölvupóst um leið og hitastig fer yfir mörk
  • Ef mæling fer yfir mörk er hægt að stofna sjálfvirkt atvik til úrlausnar
  • Sjáðu sögu hvers nema aftur í tímann og taktu út skýrslur fyrir úttekt
  • Þú leigir búnaðinn hjá okkur og við tryggjum uppitíma, skráningar og rafhlöðuendingu
24/7vöktun á hita, líka þegar eldhúsið er lokað
Kokkur skoðar hitamælingar á spjaldtölvu í eldhúsi Hitamælingar á skjá á vegg við kæliherbergi
Atvik

Skýrari leið til að halda utan um frávik og leysa þau rétt

Þegar eitthvað fer úrskeiðis, hvort sem það er óhapp starfsmanns, hitastig utan marka eða gátlisti sem náðist ekki að klára, þá er það skráð á einum stað með fullri sögu. Hver skráði atvikið, hvenær það gerðist, hvað var gert og hver fylgdi því eftir. Þegar úttektarmaður spyr hvað gerðist og hvernig það var leyst er svarið alltaf til staðar, ekki í minni einhvers sem er hættur.

  • Skráðu atvik beint á síma eða spjaldtölvu með mynd, lýsingu og staðsetningu
  • Hvert atvik fær sjálfvirkt númer og fer í skýrt úrlausnarferli
  • Flokkaðu eftir alvarleika og stöðu svo brýnustu málin sjáist strax
  • Skráðu rótargreiningu og leiðréttingaraðgerðir svo sama atvik endurtaki sig ekki
  • Hitamælingar og gátlistar geta stofnað atvik sjálfkrafa þegar frávik verður
  • Taktu út skýrslur í PDF, tilbúnar fyrir Heilbrigðiseftirlit, MAST eða Vinnueftirlitið
100%rekjanleiki frá upphafi til enda
Yfirmatreiðslukona skráir atvik á spjaldtölvu eftir óhapp í eldhúsi Yfirkokkur fer yfir atvikaskráningar með starfsfólki á vegg-skjá
Upplifðu mettu í þínu eldhúsi

Best er að sjá og upplifa kerfið með eigin augum.

Bókaðu 30 mínútna kynningarfund með okkur og við finnum út í sameiningu hvaða leiðir henta best fyrir þitt eldhús. Metta er til þjónustu reiðubúin.

Efnaskrá

Öruggari leið til að halda utan um efni og öryggisblöð

Öll hreinsiefni og íðefni eldhússins á einum stað, með hættumerkjum, öryggisblöðum og leiðbeiningum um meðhöndlun og skyndihjálp. Starfsfólk getur flett upp hvaða efni sem er á sekúndum og séð hvernig á að nota það á öruggan hátt. Þegar úttektarmaður biður um öryggisblað fyrir tiltekið efni er það til staðar strax, ekki týnt í skúffu eða á úreltu formi.

  • Öll efni skráð á einum stað með GHS hættumerkjum og flokkun
  • Öryggisblöð (SDS) geymd stafrænt og aðgengileg starfsfólki hvenær sem er
  • Sjálfvirk útfylling úr SDS skjali sparar handavinnu við skráningu
  • Leiðbeiningar um persónuhlífar, geymslu og skyndihjálp fylgja hverju efni
  • Viðvörun þegar hættulegt efni vantar gilt öryggisblað
  • Staðfestingar starfsfólks á að það hafi lesið og skilið meðhöndlun
10 sekað finna öryggisblað þegar á þarf að halda
Efnaskrá flett upp á spjaldtölvu í eldhúsi Efnaskrá á skjá á vegg við þrifastöð með hreinsiefnum
Áhættumat
Í boði frá september 2026

Faglegri leið til að meta áhættu og verja eldhúsið

Kortleggðu hætturnar í eldhúsinu á kerfisbundinn hátt, allt frá hráefnamóttöku til framreiðslu, og gefðu mat á hverja þeirra út frá líkum og alvarleika. Tengdu svo mestu áhætturnar beint við gátlistana og hitamælingarnar sem vakta þær, þannig að eftirlitið verður sjálfvirkt. Þá veistu ekki bara hvar áhættan liggur, heldur ertu líka með virkt eftirlit sem grípur frávik áður en þau verða að vandamáli.

  • Þú getur metið hverja hættu í 5x5 matrixu þar sem líkur sinnum alvarleiki gefa einkunn frá 1 upp í 25
  • Litakóðuð matrixa dregur mestu áhætturnar fram, svo þær fara ekki framhjá neinum
  • Tengdu mestu áhætturnar beint við gátlistana og hitamælingarnar sem vakta þær
  • Útgáfusaga geymir allar breytingar, svo þú sérð hvað breyttist og hvenær
  • Lesstaðfestingar sýna að starfsfólk hafi kynnt sér nýjasta matið
GÁMESaðferð sem MAST viðurkennir fyrir innra eftirlit
Áhættumat yfirfarið á spjaldtölvu með 5x5 matrixu GÁMES greining á skjá á vegg í eldhúsi
metta | vakt

Þráðlaus hitamæling, mikilvægur liður í rekstri
iðnaðareldhúsa og veitingastaða.

metta | vakt er þráðlaus skynjarafloti sem vaktar hitastig í kælum og frystum hjá þér, allan sólarhringinn. Þú kaupir engan búnað, þú leigir hann hjá okkur. Við sendum tækin tilbúin og merkt fyrir hvert svæði, þú kemur þeim einfaldlega fyrir á sína staði og þau byrja strax að skrá hitastig beint inn í mettu. Þannig hverfa handvirku mælingarnar, ekkert gleymist og þú færð viðvörun um leið og eitthvað fer úrskeiðis, líka um miðja nótt eða um helgar þegar enginn er á staðnum. Bilun í kæli getur eyðilagt hráefni fyrir hundruð þúsunda á einni nóttu, og með sjálfvirkri vöktun grípurðu vandann áður en hann verður að tjóni. Á sama tíma byggirðu upp samfellda, vottaða mæliskrá sem sannar að kælikeðjan hafi haldist í lagi, sem verndar bæði matvælaöryggið og orðspor rekstrarins þegar eftirlitið bankar upp á.

Hitanemi

Hitanemi

Þráðlaus hitamæling fyrir kæliherbergi, frysta og geymslur. Aftengjanlegur nemi mælir frá −50°C upp í +105°C með ±0,5°C nákvæmni.

  • EN12830 vottað fyrir kælikeðju
  • HACCP samhæft
  • IP67 vatns- og rykvarið
  • Geymir 2.800 mælingar staðbundið
  • Rafhlaða endist allt að 3 ár
Leigðu þennan búnað fyrir aðeins
1.990 kr. án VSK á mán.
50% afsláttur af öllum skynjurum umfram þrjá. Fyrstu þrír á fullu verði.
Hitanemi með skjá

Hitanemi með skjá

Sama nákvæmni og hitaneminn en með LCD skjá svo starfsfólk les hitastigið beint af tækinu. Styður líka hurðanema samhliða.

  • EN12830 vottað fyrir kælikeðju
  • LCD skjár fyrir aflestur á staðnum
  • 21 CFR Part 11 fyrir PDF skýrslur
  • Rafhlaða endist 5 til 15 ár
  • Rauntíma viðvaranir við frávik
Leigðu þennan búnað fyrir aðeins
2.990 kr. án VSK á mán.
50% afsláttur af öllum skynjurum umfram þrjá. Fyrstu þrír á fullu verði.
Hitanemi með rakamæli og hurðanema
Vinsælastur

Hitanemi með rakamæli og hurðanema

Mælir hita og raka og skráir um leið hvenær kæliherbergi eða frystir er opnaður. Sendir viðvörun ef hurð stendur opin of lengi, svo ekkert fer framhjá þér.

  • Hiti, raki og hurðaopnun í einu tæki
  • Hitanákvæmni ±0,3°C
  • IP67 vatns- og rykvarið
  • Geymir 2.800 mælingar staðbundið
  • Rafhlaða endist 5 til 10 ár
Leigðu þennan búnað fyrir aðeins
3.990 kr. án VSK á mán.
50% afsláttur af öllum skynjurum umfram þrjá. Fyrstu þrír á fullu verði.
Tengipunktur

Tengipunktur

Ein gateway tekur við gögnum frá öllum skynjurum hússins og kemur þeim í kerfið. Tengir allt að 2.000 tæki og nær um 2 km í þéttbýli. Við stillum búnaðinn og sendum hann tilbúinn til þín (Plug and Play).

  • 8 rásir, styður allt að 2.000 tæki
  • Innbyggður ChirpStack netþjónn
  • PoE, gögn og rafmagn um einn kapal
  • Ethernet, WiFi og 4G varaleiðir
  • Veggur- eða loftfesting
Leigðu þennan búnað fyrir aðeins
5.990 kr. án VSK á mán.
Metta Vakt er eingöngu fáanlegt sem viðbót við hugbúnaðarpakka. Sjálfvirk hitavöktun er fáanleg með öllum pökkum, einnig Metta Mini.
Pakkar

Veldu pakka sem passar
þínum rekstri.

Þrír pakkar sem vaxa með rekstrinum, frá grunneftirliti upp í fulla stjórnun á mörgum staðsetningum. Við förum yfir þarfirnar með þér, stillum kerfið upp og þjálfum starfsfólkið. Hafðu samband og við finnum réttu lausnina saman.

Í boði núna
Metta Mini

Innra eftirlit og grunnrekstur

Allt sem þarf til að uppfylla kröfur MAST og Vinnueftirlits um stafrænt innra eftirlit. Hentar minni eldhúsum og þeim sem vilja koma pappírslausu eftirliti í gang á einfaldan hátt. Stendur fyllilega sjálfstætt sem löglegur gæðarekstur.

Gæði og eftirlit
  • Þrifa- og gátlistar (GÁMES)
  • Atvik og fráviksmeðhöndlun
  • Efnaskrá og öryggisblöð
Stjórnun
  • Starfsfólk og hlutverk
  • Verkferlar og stefnur
  • Stimpilklukka og vaktaplön
Yfirsýn
  • Mælaborð (grunnur)
  • Ytri skýrslur og QR
Bættu við sjálfvirkri hitavöktun með metta | vakt hvenær sem er.
Í boði frá september 2026
Metta Stóreldhús

Gæði og rekjanleiki

Fullbúið gæðakerfi með sjálfvirkum hitamælingum, áhættumati og fullum rekjanleika. Fyrir eldhús sem vilja virkt eftirlit og vera alltaf tilbúin fyrir úttekt. Þetta er pakkinn sem hentar flestum atvinnueldhúsum og stóreldhúsum.

Allt í Metta Mini, auk
Gæði og eftirlit
  • Sjálfvirkar hitamælingar
  • Áhættumat og GÁMES
  • Innri úttekt
Birgðir og framleiðsla
  • Birgðir og lager
  • Uppskriftir
  • Merkimiðar
Rekstur og yfirsýn
  • Viðhald og verkbeiðnir
  • Mælaborð (útvíkkað)
Í boði frá nóvember 2026
Metta Rekstur

Rekstur og stjórnun

Heildstætt rekstrarkerfi fyrir stærri rekstur og fjölstaða starfsemi. Bætir matseðlum, máltíðaskráningu og fullri rekstrarstýringu ofan á gæðakerfið, svo öll starfsemin er á einum stað með yfirsýn yfir allar staðsetningar.

Allt í Metta Stóreldhús, auk
Framleiðsla og framreiðsla
  • Matseðlar
  • Máltíðaskráning
  • Skjáir og upplýsingaskjáir
Rekstur
  • Frystir og frystigeymslur
  • Pantanir
  • Úrgangur og rýrnun
Yfirsýn
  • Fjölstaða yfirsýn
  • Fullt mælaborð og skýrslur

Verð fer eftir staðsetningum og starfsmannafjölda. Innleiðing er innifalin sem eitt skipti og við sjáum um uppsetningu og þjálfun. Hafðu samband fyrir verðtilboð sniðið að þínum rekstri.

Tilbúin að byrja?

Komdu eldhúsinu þínu í pappírslaust eftirlit.

Við setjum kerfið upp, flytjum gögnin þín og þjálfum starfsfólkið. Uppsett hjá þér innan 14 daga frá pöntun, þér að kostnaðarlausu að prófa.

Hafðu samband

Eitt símtal.
Þú sérð hvort Metta passar.

Við sýnum þér kerfið í gangi, sniðið að þínu eldhúsi, og svörum öllum spurningum. Engar skuldbindingar.

1
Við höfum samband
Innan eins virks dags frá fyrirspurn.
2
Stutt kynning
Sniðin að þínu eldhúsi, þér að kostnaðarlausu.
3
Uppsett hjá þér
Innan 14 daga frá pöntun, með kennslu fyrir starfsfólkið.
Beiðni um kynningu

Fylltu út og við höfum samband innan eins virks dags.

Við segjum ekki frá upplýsingum þínum. Engar skuldbindingar.

Algengar spurningar

Spurningar og svör

Reglur, úttekt og samræmi
Já. Metta uppfyllir lágmarkskröfur Matvælastofnunar og Vinnueftirlits um stafrænar skráningar og innra eftirlit.
Já. Allt er tímastimplað og rekjanlegt, og þú getur kallað fram hvaða skráningu sem er og tekið út skýrslu á sekúndum þegar eftirlitið bankar upp á.
Já. Gátlistar, áhættumat og atvik eru byggð utan um GÁMES, svo daglega eftirlitið fellur sjálfkrafa í rétt form.
Já. Hitavöktunarbúnaðurinn skráir samkvæmt EN12830 staðlinum fyrir kælikeðju, sem er það sem eftirlitið gerir kröfu um.
Já. Hægt er að taka út skýrslur á PDF og CSV, bæði fyrir staka skráningu og tímabil, tilbúnar til afhendingar.
Hitavöktun og búnaður
Við leigjum þér búnaðinn, þú kaupir ekkert. Við sendum tækin, setjum upp og höldum við, og mánaðargjaldið er fast með þjónustusamningi. Bili tæki færðu nýtt.
Já. Sjálfvirk hitavöktun er fáanleg sem viðbót við alla pakka, einnig Metta Mini.
Nemarnir geyma mælingar staðbundið og tengipunkturinn er með varaleiðir, svo ekkert glatast. Gögnin skila sér um leið og samband kemst aftur á.
Þú færð nýjan nema þér að kostnaðarlausu, það er innifalið í leigunni og þjónustusamningnum.
Nei. Við sendum tækin merkt fyrir hvert svæði og þú kemur þeim einfaldlega fyrir. Tengipunktinn setjum við upp og stillum.
Innleiðing og uppsetning
Við setjum kerfið upp hjá þér innan 14 daga frá pöntun, sjáum um alla uppsetningu, flutning gagna og þjálfun starfsfólks.
Nei. Við stillum kerfið upp eftir þínum rekstri og þjálfum starfsfólkið. Þú þarft ekki að setja upp neitt sjálf eða sjálfur.
Já. Við aðstoðum við að flytja inn gátlista, efnaskrá og aðrar skráningar svo þú byrjar ekki frá grunni.
Dagleg notkun
Já. Allt viðmótið er á íslensku, ensku og pólsku, og hver starfsmaður velur sitt tungumál.
Já. Kerfið er hannað fyrir snerti og virkar í síma, spjaldtölvu og tölvu, svo starfsfólk skráir beint á gólfinu.
Skráning tekur sekúndur. Atriði eru tikkuð, hitastig slegið inn eða mynd tekin, svo þetta tefur ekki annríkið.
Já. Hver skráning er merkt notanda og tímastimpluð, svo þú hefur fullan rekjanleika án þess að nokkur þurfi að halda utan um það handvirkt.
Kerfið sýnir hvað er ólokið og hvað er á eftir áætlun, og hægt er að stofna atvik sjálfkrafa ef til dæmis hitastig fer út fyrir mörk.
Aðgangur, hlutverk og fjölstaða
Já. Hægt er að halda utan um margar staðsetningar með sameiginlegri yfirsýn, sem hentar fjölstaða rekstri og stofnunum.
Hver notandi fær hlutverk sem stýrir hvað hann sér og getur gert, frá starfsmanni upp í stjórnanda, svo réttar upplýsingar fara til réttra aðila.
Já. Metta Mini stendur fyllilega sjálfstætt sem löglegur gæðarekstur og hentar minni eldhúsum sem vilja koma pappírslausu eftirliti í gang.
Verð, skilmálar og framboð
Verð fer eftir fjölda staðsetninga og starfsmanna. Innleiðing er innifalin sem eitt skipti, og við gerum þér verðtilboð sniðið að rekstrinum.
Já. Þú getur byrjað á Metta Mini og fært þig upp í Stóreldhús eða Rekstur þegar þeir koma út, án þess að missa gögn.
Metta Stóreldhús kemur út í september 2026 og Metta Rekstur í nóvember 2026. Þú getur skráð áhuga núna og fengið tilkynningu þegar þeir verða tilbúnir.
Gögn, öryggi og stuðningur
Þú átt þín gögn. Þú getur tekið þau út hvenær sem er og þau eru ekki seld eða notuð í öðrum tilgangi.
Já. Gögn eru hýst innan EES, afrituð reglulega og meðhöndluð í samræmi við GDPR.
Já. Þjónusta, uppsetning og kennsla fara fram á íslensku.
Þetta fer eftir þörfum hvers rekstrar og við förum yfir mögulegar tengingar á kynningarfundi.